Barbie er Dauð...

...on that note, we kill the music!

09.12.2007 17:32:41 / henny

dagmamman er víst best!

Ég upplifði eina af mörgum martröðum mínum núna rétt áðan. Sonur minn, varla tveggja ára, afneitaði mér og neitaði að vera hjá mér á jólaballi. Það var ekki það að það var svona gaman að leika og dansa með krökkunum, seiseinei, ekki lék hann sér með krökkunum. Hann vildi bara miklu frekar sitja í fanginu á fyrrverandi dagmömmu sinni! Hún er náttla miklu betri en mamma og pabbi... miklu betri!

Svona núna er ég að jafna mig eftir þessa móðgun og sit og horfi á hina sívinsælu stubba með pjakknum mínum!

Ave

Henný 


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.07.2007 21:58:32 / henny

Furðulegt syndróm

Alveg ótrúlega margar og mismunandi tegundir af perlum í vinnunni minni! Þetta er alveg fólk sem ég mun aldrei gleyma!

Einn af þessum snillingum var voðalega slappur. Það var synd því að hann er svo ótrúlega skemmtilegur, gengur um með alls kyns hljóðum, svona "biggíbaggíbúggí", "sjaggasjagga" og "pangpangpang, hvíssss"! En í síðustu viku þögnuðu hljóðin, maðurinn orðinn ansi slappur og kominn á líknandi meðferð, lá bara alveg pakk upp í rúmi og það lá við að hann slefaði. Svona var hann í heila fjóra sólarhringa, það var búið að láta ættingja vita og segja að það gæti verið mjög stutt eftir og allt... en þá bara, einn morguninn, rís minn maður úr rekkju og fer að ganga um gólf og í stað skemmtilegu hljóðanna er hann bara orðinn fyllilega skýr, en reyndar á enskri tungu með einu og einu íslensku eða dönsku orði... ekkert smá furðulegt! Núna, eftir að hafa veitt honum aðstoð, segir hann bara "How mutch?"... og í dag þegar ég spurði hvernig hann hefði það sagði hann "Godt, kæmpe godt! You know what they say, to be or not to be!"

Ave

Henný 


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.07.2007 20:00:57 / henny

Letikast

Vá, hvað ég hef alveg ofboðslega lítið að segja þessa dagana. Líklega svona svipað mikið og sonur minn sem ætlar bara ekki að segja neitt. Hann er nefnilega búinn að búa til svo góða tækni sem einkennist á hljóðunum "mmmm" "mamma" "haaa?" og auk þess er hægt að nota þessa taltækni með snudduna upp í sér. Til hvers að tala þegar mamma skilur þessi hljóð hans?!?
En nei nei, um daginn kom eitthvað sem minnti á "krakkarnir" en var örugglega bara "dadadadadada"! Svo þetta er allt að koma, vonandi!
Er farin að sofa, á að mæta í vinnuna klukkan ellefu, semsagt eftir þrjá tíma....
Ave
Henný
 
 

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.07.2007 12:22:06 / henny

Lost

Vitið þið, ég held ég kunni bara alls ekki að vera Marinó laus. Marinó fór upp í sveit síðasta fimmtudag á svokallaða "pabbahelgi" og kemur ekki aftur fyrr en á morgun. Það var fínnt þar til í dag, því ég er búin að vera vinna eins og brjálæðingur, en í dag á ég ekki að fara að vinna fyrr en í nótt svo ég er svoldið einmana! Er búin að taka til í kofanum, fara út að labba með hundinn og lesa Harry Potter, svo nú er ég svoldið lost.... Hvað næst?!?

ave

Henný 


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.07.2007 18:08:16 / henny

Litla systir er lítið laufblað

Litla systir er Maradonna, bara kvenkyns, miklu minni og þar að leiðandi miklu léttari! Hún er svo létt að hún er barasta bókstaflega hlupin niður á vellinum. Reyndar er smá kostur við þetta, mótherjarnir þora stundum ekki í hana af fullum krafti, eiga svoldið á hættu við að brjóta þetta litla laufblað! Héðan í frá er það bara fitun og styrking fyrir litlu systur....

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.07.2007 21:19:28 / henny

Grænn dagur

Vá, ég er barasta skít hrædd við garðinn minn! Það að hann er svoleiðis að drukkna í arfa er nógu ógnvekjandi en málið er að þar er ekki öll sagan sögð. Garðurinn minn er lifandi, alveg sprell lifandi! Gulir sniglar, risa sniglar, geitungar, hunangsflugur, flugur, arfi, hreiður, fúið hænuegg, tennisspaði, skrilljón trilljón risa grjóthnullungar, plast fiðrildi, furðu plöntur, glerflaska af malti, glerflaska af Miller, málaðir steinar, netahringur og alls kyns plast rugl er bara hluti af því sem ég fann í dag þegar ég braust í gegn um garðinn minn!

Mamma var nú sniðugari en ég því hún sagaði sig áfram með sög í garðinum, en ég notaði bara hendurnar, enda er ég alveg öll út í nálum frá þessum f... rósum sem eru út í garði! En svo endaði þetta hjá mömmu með því að hún sagaði í löppina á sér, lovely!

Ave

Henný!


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.06.2007 13:28:33 / henny

Komin heim!

Ég er komin heim í heiðardalinn.... Sweet home Þorlákshöfn!

Lennti í morgun!

... og vá hvað þetta var allt saman frábært, ég held ég geti sagt að ég sé alveg ný manneskja, dekkri á hörund og full af fróðleik um Austur Evrópu! Sumt var menningarsjokk, t.d. þegar Smára var boðið að koma 14 ára sígunastelpu á eitthverri subbu lestarstöð í Tékklandi!

En hey, nú er bara málið að hringja í mig og bjóða mér á kaffihús og heyra allt um þetta!

Ave

Henný 


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.06.2007 10:45:37 / henny

Bakpokaferd!

Vá, sólbrennd... en samt verulega heit!

Giskid hvar ég er núna......

.... ég er í Vín, sem er hofudborg Austuríkis!

Nú tegar hef ég ferdast til Kaupmannahafnar, Varsjá, Krakow, Budapest og er komin til Vín....

Hápunktar ferdarinnar hingad til í stórum dráttum:

  • Fyllerí med pabba hans Smára í DK - Tad var ógedslega gaman og alveg gratis!
  • Tólf tíma sigling yfir Eistrarsaltid yfir til Póllands -  Svoldid löng sigling, en í stóru skipi sem innihélt barasta allt!
  • Lööööng lestarferd frá Swinutsjé í Póllandi til Varsjá og tadan til Krakow... tók um 13 tíma!
  • Djamm í Krakow sem endadi med svakalegu black out á spítala -  Heilin á mér var skannadur, höfudkúpan  myndud og saumud tvö spor, ég er alveg haett ad drekka, aldrei aftur!!!
  • Skodudum Autswithc og Salt Námurnar nálagt Krakow! -  Virkilega skemmtilegar verdir, eitthvad sem var alveg magnad!
  • Tókum adra langa lestarferd til Budapest í Ungverjalandi!
  • Skodudum midbaejinn og fórum í risa stórt Spa, sólbrann mjög illa.... Sídan var City Sight Seeing!
  • Fórum á staersta úti skemmtistad í Evrópu, og ég náttúrulega edrú!
  • Tókum lest hingad til Vín....

.... Ég sá reyndar mann borda heila svona fjölskyldumáltíd á KFC aleinn.... tad var svakalegt!!!

... er farin út í sólina...

Ave

Henný


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.06.2007 19:28:05 / henny

Fréttir

Fréttir af mér í stuttu máli sem útskýra bloggleysið!!

  • Ég er flutt í nýja húsið!
  • Ég á eftir að tengja internetið þar!
  • Ég er að fara til austur Evrópu í nokkuð marga daga!
  • Ég er snillingur!
  • Brjálað að gera í vinnunni!
  • Brjálað að gera í uppeldi sonar míns!  


  • ... og þá er það upp talið... újé 

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 22:19:08 / henny

Scary Gospel!

Smá pæling hérna, ég var víst að komast að því að í mér býr nokkuð mögnuð hræðsla við Gospel kóri.... Jamm, þessa sem syngja um hversu mikið þeir elska Jesús og hvað allt er gott í heiminum!

Ég held að málið sé hvað þau eru öll í góðu formi, brosandi og flott! Sveiflandi sér fram og aftur, syngjandi eins og Celin Dion á extacy, klappandi og ekki vottur um svita. Sko ef ég væri í svona kór þá væri ég sprungin á limminu eftir fyrsta erindi! Ég myndi ekki ráða við það að sveifla mér, klappa og syngja.... hvernig fer þetta fólk að þessu!?!

Hvernig ætli að inntökuprófið í svona kór sé? Hlaupa á hlaupabretti og syngja Blátt lítið blóm eitt er með sveiflu og klappa á sama tíma! ... og náttla að hafa colgate bros... sparkling white! King of the castle, sparkling white and shiny!

 

Ave
Henný sætasta  
 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 17:34:09 / henny

Sveitaball... allar elska sveitaball

Hæhæ allt fallega fólkið sem les bloggið mitt og sum þið hin sem bara óvart fóruð hérna inn og eruð þá kanski ekki alveg jafn falleg og fólkið sem kemur hérna viljandi. Hey, það geta ekki allir verið svona sjúklega fallegir og fastagestir síðunnar minnar, máltækið segir, því oftar sem þið komið hérna inn því fallegri verðið þið og óstaðfestar fregnir segja að greindarvísitalan hækkar líka við hverja heimsókn! Svo ég mæli með að koma hérna sem oftast, heilsunnar vegna!

Kosningar-djammið fór óvart í allt aðra átt en ég átti vona á! Þið hafið heyrt um svona fólk sem fer að djamma og endar síðan á allt öðrum stað t.d. í gámi á leið til Afríku, á skútu á leið til Góðramannahöfða eða jafnvel á sveitaballi á Stokkseyri! Þannig var nú djammið mitt! Ég og Helga Marie, sem er rosa fín stelpa sem ég er að vinna með á Eir, vorum búnar að plana rosa fancý djamm. Helga er svona stelpa sem fer frekar sjaldan út úr Höfuðborginni, svo ég átti von á bara ágætu djammi á eitthverjum hnakkastaðnum, Sólon or something! En svo hringdi driverinn okkar og sagðist vera að fara á Draugabarinn á Stokkseyri, og þá vorum við barasta driver lausar, og það er erfitt að fara á kosningarskrifstofu rúnta þegar maður hefur engan driver! Svo nú voru góð ráð dýr og ég bara svona upp úr þurru "Hey, skellum okkur á sveitaball!" og Helga bara "Okey, im game".... og þar með vorum við á leið á sveitaball!

Draugabarinn klikkar sko ekki! Karma var að spila og alveg frekar mikil skothríð á barnum hjá okkur stelpunum... sko tópasskot hægri/vinsti og allr í rugli en ógeðslega gaman! Heimir kynnti mig svoleiðis fyrir öllum á staðnum og annar hver peyji reyndi við Helgu þvú kommon, hún var náttla eini Reykvíkingurinn á staðnum!

Eftir Dragabarinn fórum við aftur í Höfuðborgina, Heimir skutlaði okkur! Planið var að fara niður í bæ en eftir þennan svakalega dans á Draugabarnum vorum við nokkuð búin og fórum bara heim til Helgu að sofa.... svoldið mikið gott að fara að sofa eftir svona kvöld!

Vaknaði síðan klukkan 10 um morguninn og gekk Esjuna áður en ég átti að mæta í vinnu... ekkert smá hressandi og rétta ráðið við þynnku!

-Henný

P.s. búin að fá hlutverk sem aukaleikari í nújum sjónvarpsþáttum á stöð 2.... læt ykkur vita betur um það seinna! 


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 21:53:55 / henny

A- Eurovision

Mig langar til þess að gráta, hlæja, æla, púa, skríða í gólfinu og beita ofbeldi af fullum krafti! Þetta Euro bull shit.... meira svona A-Eurovision að mínu mati... Búlgaría komst áfram með svo ömurlegt lag að ég segji bara bring back Anna Mjöll og Sjúbbídú! Hér með mæli ég með að ef við finnum ekki leið til þess að færa Ísland yfir í A-Evrópu þá ættum við bara að senda Silvíu Nótt út á hverju ári!!!

Mæli með blogginu hér fyrir neðan, þetta er nefnilega bara smá svekkelsislegt tuð!


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 16:48:53 / henny

Fengitími í nánd

ÚÚÚ. ég held varla vatni, ég er svo spennt yfir þessu öllu saman! Þar sem ég er bæði Eurovision og pólítíkusa persónan þá er þessi tími svona eins og fengi tími hjá mér.... endalaus skemmtun! Fyrsta lota í kvöld og það er þegar búið að bjóða mér í Eurovision mat og skemmtun, en þar sem Heimi langar meira að vera hérna heima hjá mömmu minni og borða pizzuna sem hún lofaði honum þá ætlum við að gera það, Heimir er svona pizzu maður, alveg milljón!

Og síðan um helgina, þá er líka búið að bjóða mér í svona pre-Eurovision partý á föstudeginum upp í sveit, Hólmasel or something, þar verður staffa partý hjá Kumbó.  Svo er náttla Euro kvöldið sjálft, þá eru tvö til þrjú partý á planinu... en ég verð að vinna á Eir. Það er samt allt í góðu, ég og Helga höldum bara flottasta Euro partýið í bænum á Eir og málum síðan bæjinn rauðann og smökkum bjórinn á hinum ýmsu kosningaskrifstofum eftir vinnu... vá hvað þetta á eftir að vera góð helgi!!! 

Annars er bara allt alveg að koma heim og saman í þessum flensu málum hjá Týra. Hann er reyndar enn allur út steyptur í bólum og svo kom það í ljós að hann er með eitthvað miður skemmtilegt surg hljóm í hjartanu sem þarf að athuga betur. Svo ég pantaði tíma í hjartaómskoðun og viðtal við barnahjartalækni... Síðan hringdi mín fyrrverandi tengadmamma í mig og sagðist vera búin að panta hjá einum þeim færasta á norðurlöndunum. Ég varð því miður að hafna því, ég er bara einstæð móðir og hef ekki efni á því, ég held ég hafi varla efni á þessum sem ég er að fara til því ekki er pabbinn að bjóðast til að borga og ég bið hann ekki um pening!!!

En ég og Heimir erum að vara að horfa á Die Harder...

AVe 

Henny


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.05.2007 15:47:13 / henny

Hvað á að kjósa??

Hefurðu ekki grænan grun um hvað þú ætlar að kjósa... Tékkaðu á þessu.... http://xhvad.bifrost.is/

P.s. Ég gæti náttla líka sagt ykkur hvað þið eigið að kjósa... það er ósköp einfalt mál...

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.05.2007 22:52:21 / henny

skarli frændi

Jibbý Jei Hey...

Bara slæmar fréttir að pestabælinu hérna... allir í rugli og algjörir lasarusar! Marinó búinn að vera með skarlasótt alla síðustu viku, með alveg 40,9 stiga hita, ælandi, gargandi og með leiðindi! Svo núna, þegar Marinó er að lagast, er ég líka komin með þennan nýja fjölskylduvin, herra Skarlat sem kemur með sótt með sér og mamma er líka eitthvað farin að láta á sjá. Talandi um vesen!!! Svo er Kolka líka ný komin úr aðgerð.... svo nú er spurningin, hvað næst?

Öll raftæki heimilisins búin að vera í uppreisn, fyrst nuddtækið hennar ömmu, svo sjónvarpið, þvottavélin, ryksugan sem slær allt út og allar þessar perur sem gera ekkert annað en að deyja í andyrinu.... Awsome!!!

Jæja. best að fara að vorkena sjálfri mér...

Ave

Henný


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 9 desember
...and then there was myspace!
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti